Ekki missa af þessu
Kveðja frá næstu nágrönnum Íslands.

Jólagjafir til barnanna í Kulusuk

Stekkjarstaur var í öruggum höndum áhafnar AIC. Þarna er sveinki með Gunnari Birni Bjarnasyni, Kristjáni Orra Magnússyni og Íris Jónsdóttur.

Í dag fór leiðangur Hróksins og Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, í sína árlegu jólagjafaferð til Kulusuk á Grænlandi. Fyrstur út úr flugvélinni stökk hinn rammíslenski og glaðbeitti Stekkjastaur með jólapakka og góðgæti í farteskinu. Með honum í för var Hrafn Jökulsson forseti Hróksins, upphafsmaður skáklandnámsins á Grænlandi 2003.

Skólastjórahjónin í Kulusuk heiðruð.

Öll grunnskólabörnin í Kulusuk komu á flugvöllinn, ásamt kennurum og fjölmörgum foreldrum á flugvöllinn til þess að fagna íslensku gestunum. Justine Boassen skólastjóri var heiðruð sérstaklega og allir kennarar grunnskólans fengu ilmandi blóm að gjöf.

Vinir okkar hjá Air Iceland Connect fluttu jólasveininn, Stefán Herbertsson og Hrafn Jökulsson til Kulusuk ásamt gnótt af gjöfum.

Allir fengu eitthvað fallegt!

Margir hjálpuðust að við undirbúning þessarar gleðifarar til bestu nágranna í heimi, Grænlendinga. Í pökkunum var jólaglaðningur frá prjónahópnum góða í Gerðubergi, og fjölmörgum einstaklingum öðrum, sem og ýmislegt fallegt frá BÓNUS, Góu, Sólarfilmu, IKEA og BROS. Það var Henný Nielsen jólagjafastjóri Hróksins sem stýrði innpökkun í Pakkhúsi Hróksins, Grænn markaður sendi afskorin blóm til þess að gleðja þá sem eldri eru og Mjólkursamsalan sendi jólaostaöskjur.

Gjafirnar voru afhentar til þess að þakka fyrir þann vinahug sem á milli landanna tveggja ríkir. Hrafn Jökulsson sagði í stuttu ávarpi í Kulusuk í dag, að Íslendingar ættu bestu nágranna í heimi, og að grannþjóðirnar í norðrinu ættu að stórauka samskipti og samvinnu á sem flestum sviðum.

MYNDAGALLERÍ

Umræður

ummæli

Um KALAK

KALAK -- Vinafélag Íslands og Grænlands   Pósthólf 8164 128 Reykjavík Netfang: kalak@kalak.is   Upplýsingar um starf KALAK: Stefán Herbertsson formaður, sími 898 6311, og Hrafn Jökulsson stjórnarmaður í KALAK, sími 763 1797   Viltu styðja starf KALAK? Bankareikningur: 0322-26-2082 Kennitala: 430394-2239
x

Við mælum með

Vel heppnuð hátíð Hróksins og Kalaks laugardaginn 6. júní

Það var vel heppnaður dagur í pakkhúsinu í dag, laugardaginn 6. júní, þar sem mætti ...