Kalak, vinafélag Grænlands og Íslands ásamt öðrum velunnurum Grænlands stóðu fyrir samstöðufundi í Norræna húsinu laugardaginn 14. mars.
Áhugi á Grænlandi er mikill á Íslandi sem sýndi sig í mætingu en fullt var út úr dyrum, fólk á öllum aldri og góð stemning.
Jósep Gíslason, formaður Kalak, setti samkomuna og síðan tók Steingrímur Sigfússon við sem fundarstjóri.
Dagskráin var fjölbreytt og fyrsti ræðumaður, Stefán Herbertsson, sagði frá starfsemi Kalak á Grænlandi og var með fallegar myndir sér til stuðnings. Síðan steig Karsten Peter Jensen, sendifulltrúi Grænlands á Íslandi, í pontu, flutti ávarp og þakkaði fyrir þennan dag.
Grænlenski tónlistarmaðurinn Nukannguaq Zeeb er búsettur á Íslandi ásamt fjölskyldu sinni og flutti hann tvö frumsamin lög í kjölfar fyrstu ræðumanna. Hanna í Horni, aðalræðismaður Færeyja á Íslandi, var síðan með ávarp og talaði m.a. um norrænt samstarf.
Að ávörpum loknum var borin upp ályktun sem fundarsalur samþykkti einróma. Í lok fundar steig síðan Una Torfa á svið og flutti tvö lög. Eftir að fundi lauk var almennt spjall.
Samtímis fundinum var grænlensk menning kynnt frammi á gangi í Norræna húsinu. Grænlenska listakonan Ane Gudmundsson er búsett á Íslandi ásamt fjölskyldu og sýndi hún margs konar handverk sem hún vinnur m.a. sjálf, ásamt ýmsum grænlenskum munum sem voru til sölu. Einnig voru til sýnis grænlenskir þjóðbúningar og fjöldi af bókum um Grænland frá ýmsum tímum. Stór skjár var allan tímann þar sem sjá mátti ýmsar myndir frá stöðum á Grænlandi og margar af þeim myndum koma úr starfi Kalak á Grænlandi og Íslandi.
Ályktun fundarins
Samstöðufundur með grænlensku þjóðinni, Norræna húsinu í Reykjavík laugardaginn 14. mars 2026, samþykkir eftirfarandi yfirlýsingu:
Við erum hér saman komin til að sýna grænlensku þjóðinni vináttu okkar og lýsum eindregnum stuðningi við rétt Grænlendinga til að ráða sinni framtíð sjálfir. Þjóðarrétt, mannréttindi og lýðræði, þar með talið ekki síst sjálfsákvörðunarrétt þjóða á ætíð að virða í alþjóða samskiptum. Græn-lendingum ber að sýna virðingu sem þeirri stoltu menningarþjóð sem þeir eru, styðja og virða þær ákvarðanir sem þeir sjálfir taka um eigin framtíð.
Við viljum beita okkur fyrir því að styrkja vináttuböndin milli þjóðanna og efla vestnorrænt samstarf. Við hvetjum stjórnvöld í löndunum þremur, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi til að vinna þétt saman að því markmiði að tryggja íbúum sínum friðsæld og sjálfbæra og farsæla framtíð.
Starf Kalak
Grænland og Ísland eru næstu nágrannar og er markmið félagsins að efla samskipti milli landanna og menningu þeirra. Starfið hefur sérstaklega falist í verkefnum tengdum börnum.
Stærsta verkefnið hefur verið árlegt sundverkefni undanfarin 20 ár. Þá er öllum 12 ára börnum af austurströnd Grænlands boðið til Íslands að hausti til að læra að synda. Að auki upplifa þau ýmsar ævintýraferðir eins og hestaferð, bíó, leikhús og margs konar skemmtun og afþreyingu. Með börnunum koma kennarar og/eða umsjónarmenn þeirra. Kópavogsbær er stór þátttakandi í þessu verkefni þar sem sundkennslan fer þar fram ásamt því að börnin ganga í skóla í Kópavogi og kynnast jafnöldrum sínum þar á meðan dvöl stendur. Samstarf Kalak og Kópavogs hefur verið mjög náið þessi ár og eru ófáir kennarar og aðrir aðilar í bænum sem hafa komið að starfinu. Undir lok heimsóknar barnanna til Íslands er þeim boðið til forseta Íslands að Bessastöðum.
Í desember á hverju ári fer Kalak til Kulusuk með jólagjafir til allra barnanna þar. Jólasveinninn mætir á staðinn og útdeilir gjöfunum.
Um páskana fer fríður hópur fólks til ittoqqortoormiit, nyrsta bæjar austurstrandar Grænlands og einnar af afskekktustu byggðum jarðar en það eru um 900 km í næsta byggða ból. Þar fá öll börnin í bænum gefins páskaegg, sett er upp skákhátíð og mikil gleði. Þetta starf væri ómögulegt án aðkomu velviljaðra stuðningsaðila, í formi ferða, gjafa o.fl. og ber að þakka þeim hlýhug og velvilja í gegnum tíðina.
Önnur verkefni hafa falist í skákhátíðum víða um Grænland, m.a. Polar Pelagic hátíðin í Tasiilaq en þar fer einnig fram sumarnámskeið sem Kalak er þátttakandi í ásamt dönskum kennurum. Á námskeiðinu taka börnin þátt í ýmsum leikjum, hönnun, smíði o.fl. á meðan sumarfrí er í skólunum.
Kalak og aðrir aðstandendur að samstöðufundinum vilja þakka öllum sem þátt tóku og það er ávallt opið að skrá sig í félagið og taka þátt í starfinu sem er bæði gefandi og eflandi.

Steingrímur Sigfússon fundarstjóri.

Stefán Herbertsson, stjórnarmaður í Kalak, kynnir starfsemi félagsins.

Karsten Peter Jensen, sendifulltrúi Grænlands á Íslandi.

Þjóðbúningur frá vesturströnd Grænlands.

Aldursbilið var fjölbreytt og stuðningurinn fallegur.

Grænlenski tónlistarmaðurinn Nukannguaq Zeeb flutti frumsamda tónlist.

Hanna í Horni, aðalræðismaður Færeyja á Íslandi.

Una Torfa flutti frumsamda tónlist.

Ýmsir munir frá Grænlandi ásamt bókum um Grænland.
KALAK – Vinafélag Grænlands og Íslands

