Á laugardaginn, eftir að hafa farið í Fjölskyldu – og húsdýragarðinn og svo í Skautahöllina, var ferðinni heitið á Metró í Faxafeninu en þar var sundkrökkunum hreinlega boðið í mat. Fengu þau bæði blöðrur og grímur þannig að á meðan orkan leyfði, sem þau reyndar hafa töluvert mikla, var leikið og göslast fram á kvöld. En þegar þau fara í rúmið tekur ekki langa stund að sofna. Þetta eru langir, erfiðir en hrikalega skemmtilegir dagar.
