Ekki missa af þessu

Emilia, Gudrun, Paulus og Jens

Þær Emilia og Guðrun eru æstar í skák og stefna klárlega á verðlaunapeninga um páskana 2012!

Undirbúningur fyrir heimsókn Hróksmanna til Ittoqqortoormiit við Scoresbysund, sjöttu páskana í röð, er hafinn.

Nýr skólastjóri grunnskólans, Jens Ravnskjær, hlakkar til að hitta leiðangursmenn og sjá nemendur sína dvelja í skólanum sínum meira og minna allt páskafríið, af fúsum og frjálsum vilja. Við skákiðkun!

images2_1139292.jpg Fjórir skáktrúboðar munu ferðast með Flugfélagi Íslands til hins einmananlega alþjóðaflugvallar Constable pynt þann 31. mars og fara þaðan með þyrlu frá Air Greenland yfir í þetta magnaða þorp þar sem um 470 búa í einangrun. Þó eru einhver hundruð hunda í bænum og ísbirnir ekki langt undan. Stundum bara nánast við bæjardyrnar.

Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands, hefur tekið virkan þátt í undirbúningi og aðstoðað á allan hátt. Skákkennsla verður í fyrirrúmi en sett verða upp mót, nánast daglega, fjöltefli líka og það er deginum ljósara að krakkarnir munu taka ferðalöngunum fagnandi. Þau eru þegar farin að æfa sig samkvæmt nýjustu fregnum.

Ekki síst hann Paulus Napatoq, sem nú er á tuttugasta aldursári en hann lærði mannganginn árið 2007 og gerði sér lítið fyrir og vann 60 manna mót árinu síðar. Hann hefur þó dvalist í blindraskóla í Danmörku undanfarin misseri en hlakkar til. Já, semsagt, ekki slæmt að vinna mót þegar maður er blindur.

Þeir félagar; Stefán Bergsson, framkvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur og skákkennari, Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, Jón Birgir Einarsson félagi í Skákfélagi Vinjar og svo Arnar Valgeirsson leiðangursstjóri, hlakka heldur betur til.

images.jpg Scoresbysund er um 350km langur fjörður og 80km breiður – sem gerir hann að stærsta firði heims – er stórkostlegur í alla staði. Ittoqqortoormiit er grænlenskara en allir aðrir grænlenskir bæir og þarna komast menn svo sannarlega í snertingu við náttúruna. Norðurljósin æða yfir bæinn undir spangóli hundanna í fallegu veðri, svona milli þess sem að stormur æðir yfir og frostið getur bitið í bossan. Hitinn er yfirleitt frá ca 0°og allt að mínus 30°á þessum árstíma.

Fjöldi fyrirtækja gefur vinninga á mótin og öll börnin fá vinning. Nánar um það síðar en Í Ittoqqortoormiit er það enginn sem tapar á mótunum, allir eru sigurvegarar.

 

Gens una Sumus – við erum ein fjölskylda!

Umræður

ummæli

Um KALAK

KALAK -- Vinafélag Íslands og Grænlands   Pósthólf 8164 128 Reykjavík Netfang: kalak@kalak.is   Upplýsingar um starf KALAK: Stefán Herbertsson formaður, sími 898 6311, og Hrafn Jökulsson stjórnarmaður í KALAK, sími 763 1797   Viltu styðja starf KALAK? Bankareikningur: 0322-26-2082 Kennitala: 430394-2239
x

Við mælum með

Upplýsingafundur

UPPLÝSINGAFUNDUR UM FLUTNING TIL NOREGS Vegna mikillar aðsóknar á upplýsingafund um flutning til Noregs í ...