Nú er hægt að taka þátt í söfnun vegna bruna tónlistarhússins í Kulusuk með einu símtali:
Sími 901 5001 — 1000 krónur
Sími 901 5002 — 2000 krónur
Sími 901 5003 — 3000 krónur
Þá er tekið við framlögum á söfnunarreikningi Kalak, 0322-26-002082, kennitala 4303942239
Tekið er við hljóðfærum í Tónastöðinni, Skipholti 50d.
OPNAÐ FYRIR MIÐASÖLU Á STÓRTÓNLEIKANA KLUKKAN 10 Á FÖSTUDAGSMORGUN
Á laugardag klukkan 14 verða stórtónleikarnir ,,Með kærri kveðju til Kulusuk” í Eldborg í Hörpu. Aðgangur er ókeypis og er opnað fyrir miðapantanir á heimasíðu Hörpu, www.harpa.is klukkan 10 á föstudagsmorgun. Í Eldborg verður tekið við framlögum og hljóðfærum.
Eftirtaldir listamenn koma fram:
Agent Fresco, Bjartmar Guðlaugsson, Bubbi Morthens, Digraneskórinn, DJ Margeir, Ellen Kristjánsdóttir, Erpur Eyvindarson, Fóstbræður, Haffi Haff, Jakob Frímann Magnússon, Jón Ólafsson, KK, Morgan Kane, Pálmi Gunnarsson, Ojba Rasta, Sam Sam, Sísy Ey, Sykur, Unnsteinn í Retro Stefson, Unnur Eggertsdóttir og Þórunn Antonía. Heiðursgestir á tónleikunum eru grænlensku tónlistarmennirnir Anda Kuitse, Anton Sianiale og Efraim Ignatiessen sem koma hingað til lands frá Kulusuk.
Sýnum samstöðu og vinarhug — Áfram Kulusuk!